クイックアプリ検索 »   新着 | 値下げ | 無料 | 高評価 | 新着オススメ! | キニナル! | 新着動画 | iPad新着 | iPad値下げ | iPadオススメ!
APPLICATION INFO - iPhoneアプリの詳細情報
TOP > 教育 > Lærum og leikum með hljóðin -D hljóðið í spætunni sem goggar

Lærum og leikum með hljóðin -D hljóðið í spætunni sem goggar

¥100
  • このエントリーをはてなブックマークに追加
  • Share on Tumblr
  • Check
D bókstafurinn og hljóðið hans er kennt á lifandi og skemmtilegan hátt með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður D - hljóðsins kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla.

Ef þú ætlar að kaupa smáforritið með ölllum hljóðunum velur þú Lærum og leikum með hljóðin - ALLT. Auðveldar allar seinni uppfærslur.

Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin ALLT, er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Ný rannsókn sýnir marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og læsi þegar skipulega var unnið eftir aðferðafræði Lærum og leikum með hljóðin. Niðurstöður sýndu mun betri framfarir hjá nemendunum þegar þeir voru bornir saman við jafnaldra sína í þremur öðrum skólum sem fóru í gegnum aðrar hefðbundnar lestrarkennsluaðferðir. (Gudmundsdottir. 2014)

ALLT smáforritið tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni.

Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2.
Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings.

Lærum og leikum með hljóðin ALLT inniheldur:
- Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir
- Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur
- 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið
- Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega
- Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni
- Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina
- Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð
- Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði
- Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum
- Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða
- R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins)
- Þrír gagnvirkir leikir í framhaldi af orðaæfingum þar sem myndir koma á víxl til frekari æfinga
- Hrós veitt reglulega í forritinu
- Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta
- Skráning nemenda: nafn, aldur, kyn og netfang
- Stigagjöf inni í forritinu
- Árangur sýndur í %
- Skráning athugasemda inni í forritinu
- Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti
- Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print)
- Vistun með dropbox

Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna:

Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Barnamenningarsjóður styrktu íslenska útgáfu Lærum og leikum með hljóðin, í smáforrit fyrir iPad (2013).

Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka (2015).

Frekari upplýsingar:
http.www.youtube/laerumogleikum
www. laerumogleikum.is www. kidssoundlab.com
このアプリはiPhone、iPadの両方に対応しています。
カテゴリー
教育
リリース
2013/8/18
更新
2015/12/19
バージョン
2.4
言語
サイズ
344.4 MB
条件
このバージョンの新機能
Enska smáforritið Kids Sound Lab hefur verið valið í lokaúrslit BETT 2016 undir smáforrit í MENNTUN. Það er ensk útgáfa af Lærum og leikum með hljóðin og byggir á sömu aðferðafræði til að kenna hljóðmyndun, orðaforða og undirbúa læsi.
スクリーンショット - iPhone | iPad
  • https://is4-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Purple117/v4/1e/a8/d7/1ea8d728-4416-cf6b-349e-ba7633339898/pr_source.png/406x228bb.png
  • https://is4-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Purple127/v4/55/bf/d0/55bfd070-955d-86dc-592f-f3f5e9c151b9/pr_source.png/406x228bb.png
  • https://is5-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Purple117/v4/bd/11/dd/bd11dd86-5664-6148-929f-4b3b0ff6dd86/pr_source.png/406x228bb.png
  • https://is3-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Purple117/v4/f8/e5/2e/f8e52e44-88b8-7bd5-b74f-fb292b399b1e/pr_source.png/406x228bb.png
  • https://is3-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Purple127/v4/25/d9/98/25d99882-5531-6e03-6c10-ec79dfb4d3d2/pr_source.png/406x228bb.png
スクリーンショット - iPhone | iPad
  • https://is4-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Purple127/v4/7f/dc/72/7fdc724a-eadc-ad08-a5b7-f77b592b94d7/pr_source.png/552x414bb.png
  • https://is5-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Purple117/v4/67/a7/03/67a7034a-2df2-7bb7-202d-965466f809a5/pr_source.png/552x414bb.png
  • https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Purple117/v4/fe/81/a8/fe81a8f4-78ec-cdcf-a77d-8a3bde397319/pr_source.png/552x414bb.png
  • https://is4-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Purple127/v4/b8/25/b9/b825b91d-3d0f-d4bc-fcd0-882fb60d5447/pr_source.png/552x414bb.png
  • https://is2-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Purple127/v4/1f/1c/3b/1f1c3b5b-6d99-cba3-8f00-8fd0ba6a3652/pr_source.png/552x414bb.png



このアプリのYoutube動画がある場合はURLを送信してください。詳細 »